Innlent

Maðurinn sem leitað var að fundinn

Maðurinn sem leitað var að á Ströndum í kvöld er kominn í leitirnar heill á húfi. Björgunarsveitafólk fann hann við Hvítuhlíð um klukkan 23:40. Björgunarsveitir höfðu leitað mannsins frá því fyrr í kvöld en hann var á göngu með hópi fólks á fjallið Klakk í Kollafirði. Hann varð viðskila við hóp sinn um klukkan 16: 00 í dag.

Þegar maðurinn fannst voru nokkrir tugir manna við leit auk þess sem búið var að kalla út björgunarsveitarfólk með leitarhunda af höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×