Innlent

Ólöglegir innflytjendur láta lífið í bílslysi

Bifreið full af ólöglegum innflytjendum valt í dag í Bandaríkjunum nálægt landamærunum við Mexíkó með þeim afleiðingum að níu menn létu lífið og tólf til viðbótar slösuðust. Fimm þeirra sem slösuðust eru enn í lífshættu, flestir lemstraðir á höfði. Í bílnum voru 22 menn. Ökumaðurinn var að reyna að komast undan lögreglu, sem elti bílinn, tók u-beygju og þá valt bílinn með þessum hörmulegu afleiðingum. Fjöldi ólöglegra innflytjenda lætur lífið á hverju ári við að reyna að komast frá Mexíkó til Bandaríkjanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×