Innlent

Hæðarslár eknar niður tvisvar í gær

Talsvert hefur borið á því að ökumenn hárra ökutækja keyri niður hæðarslár við brýr og göng. Í gær var tvisvar ekið á hæðarslár við gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Engin slys urðu á fólki en Lögreglan í Reykjavík hefur áhyggjur af því að ef ökumenn halda áfram þessu hátterni sínu geti farið illa. Fyrir síðustu helgi kom lögreglan upp eftirlitsmyndavél á þessum gatnamótum og mega allir sem virða ekki hæðartakmörk búast við sektum. Hæðartakmörk eru 4,2 metrar samkvæmt reglugerð um stærð og þyngd ökutækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×