Innlent

Leit hafin að fjórum erlendum ferðamönnum

Leitað er fjögurra erlendra ferðamanna sem urðu viðskila við gönguhóp á Heklu. Ferðamennirnir áttu að sameinast gönguhóp klukkan fimm í dag en skiluðu sér ekki eins og til stóð. Lögreglan á Hvolsvelli, Björgunarsveitin á Hellu og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli leita nú á Heklu og svæðinu þar í kring.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×