Innlent

Bensínverð lækkar um 1 krónu

Mynd/Gunnar V. Andrésson

Verð á bensínlítranum hefur verið lækkað um eina krónu hjá Atlantsolíu, Esso og Orkunni. Eftir lækkunina kostar kostar bensínlítrinn 126 krónur og fjörtíu aura hjá Atlantsolíu og 125 krónur og fjörtíu aura fyrir dælulyklahafa. Hjá Orkunni kostar bensínlítrinn nú 126 krónur og þrjátíu aura en 123 krónur og þrjátíu aura fyrir frelsiskorthafa. Algengt verð hjá öðrum olíufélögum er tæpar 129 krónur fyrir lítrann.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×