Innlent

Íslendingasagnaútgáfan verður Birtíngur

Íslendingasagnaútgáfan, sem keypti nýverið útgáfurétt á öllum tímaritum Fróða, hefur verið gefið nafnið Birtíngur útgáfufélag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að nafnið sé niðurstaða samkeppni sem efnt var til meðal starfsmanna hins nýja fyrirtækis. Birtíngur útgáfufélag gefur út tímaritin Hús og híbýli, Gestgjafann, Bleikt og blátt, Mannlíf, Séð og heyrt, Nýtt líf og Vikuna og hjá félaginu starfa um 80 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×