Innlent

Guðjón Hjörleifsson býður sig fram í 2.-3. sæti

MYND/Stefán

Guðjón Hjörleifsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér í 2. til 3. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta vor. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér í morgun en Guðjón var í þriðja sæti listans fyrir síðustu kosningar. Guðjón gegndi embætti bæjarstjóra í Vestmannaeyjum í tólf ár, frá árinu 1990 til 2002, áður en hann settist á þing í fyrsta sinn árið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×