Innlent

Auðvelt að kenna Litháum um fíkniefnavanda hér á landi

Það er auðveld lausn og ódýr að kenna Litháum um fíkniefnavanda Íslendinga, segir maður sem skipuleggur stofnun þingflokks um málefni innflytjenda. Hann segir ótækt að einblína á smygl um Keflavíkurflugvöll þegar hafnir landsins standi galopnar fyrir smygli.

Paul Nikolov sagði í viðtali í Íslandi í bítið í morgun að það væru fordómar og flótti að kenna einum þjóðfélagshópi um þjóðfélagsvandamál á borð við fíkniefnavandann.

Hann bendir einnig á að fíkniefnasmygl sjóleiðina til Íslands sé vanmetið, magn sem sé gert upptækt sé minna einfaldlega af því að eftirlitið sé ekki jafnmikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×