Innlent

Ásta sækist eftir þriðja sætinu

MYND/Vilhelm

Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir þriðja sætinu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar. Stjórn fulltrúaráðs flokksins hefur lagt til að prófkjör fari fram 27. og 28. október en það er í höndum fulltrúaráðsfundar að taka endanlega ákvörðun um það.

Ásta Möller var fyrst kosin á Alþingi vorið 1999 og sat sem þingmaður Reykvíkinga til ársins 2003. Hún var varaþingmaður þar til í fyrrahaust þegar hún leysti Davíð Oddsson af hólmi á þingi. Ásta er annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem sækist eftir endurkjöri en Björn Bjarnason hefur lýst því yfir að hann stefni á annað sætið í prófkjörinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×