Innlent

Fundað vegna forvals Vinstri - grænna á höfuðborgarsvæðinu

Vinstri - grænir halda í kvöld kynningarfund fyrir félagsmenn vegna forvals fyrir komandi alþingiskosningar. Þar verða tillögur uppstillingarnefndar kynntar en þær gera ráð fyrir sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi. Gert er ráð fyrir forvali fyrir félagsmenn þann 11. nóvember næstkomandi og að framboðsfrestur sé til 27. október. Í forvalinu munu kjósendur raða frambjóðendum í sæti 1-4 þannig að þeir gefi þremur frambjóðendum númerið 1, þremur númerið 2 og svo framvegis. Úrslit forvalsins verða leiðbeinandi fyrir kjörnefnd við röðun frambjóðenda á lista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×