Innlent

Böðvar nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra

MYND/E.Ól
Böðvar Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Árna Mathiesen fjármálaráðherra og tekur hann við starfinu síðar í þessum mánuði. Böðvar leysir Ármann Kr. Ólafsson af hólmi en Ármann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns ráðherra í ellefu ár, fyrst hjá Halldóri Blöndal samgönguráðherra og síðan hjá Árna Mathiesen í sjávarútvegs- og fjármálaráðuneyti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×