Formúla 1

Ferrari hafði ekkert með ákvörðun mína að gera

Schumacher vildi hætta á toppnum
Schumacher vildi hætta á toppnum NordicPhotos/GettyImages

Michael Schumacher blæs á sögusagnir sem hafa verið í gangi í dag um að forráðamenn Ferrari hafi þröngvað honum út í að hætta keppni í lok tímabils. Schumacher segir þvert á móti að Ferrari hafi veitt sér góðan stuðning alla tíð.

"Ég veit að menn hafa verið að velta vöngum yfir því að Ferrari hafi ýtt á eftir ákvörðun minni svo liðið gæti tilkynnt hverjir verði ökumenn liðsins á næsta ári, en þetta er ekki rétt. Liðið veitti mér allan þann stuðning sem ég þurfti og ég fékk algjörlega frjálsar hendur með það að ákveða mig," sagði Schumacher og bætti við að hann hafi viljað hætta á toppnum.

"Ég spurði sjálfan mig hvort ég yrði toppökumaður eftir nokkur ár og svarið við þeirri spurningu hefði líklega verið nei. Ég er í fínu formi núna, en ég vil hætta á meðan ég er enn á meðal þeirra bestu - metnaður minn hefur ekkert með það að gera að vera miðlungsökumaður," sagði þessi sigursæli Þjóðverji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×