Innlent

Borgarafundir gegn umferðarslysum í dag

MYND/E.Ól

Borgarafundir gegn umferðarslysum verða haldnir á sjö stöðum á landinu samtímis klukkan kortér yfir fimm í dag. Fundirnir bera yfirskriftina "Nú segjum við stopp!" og beinast þeir gegn áhættuhegðun í umferðinni. Á fundunum flytur erindi fólk sem hefur persónulega reynslu af alvarlegum slysum eða sorg vegna ástvinamissis í umferðarslysum. Ennfremur lýsa lögreglu- og slökkviliðsmenn reynslu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×