Innlent

Kristján stefnir á annað sætið

Kristján Pálsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri fyrir komandi þingkosningar.

Kristján sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1995 til 2003 en var með sérframboð í síðustu þingkosningum eftir að hann fékk ekki sæti á lista flokksins við uppröðun. Með framboði Kristjáns harðnar baráttan um þingsæti Sjálfstæðisflokksins enn frekar í Suðurkjördæmi því þingmennirnir Drífa Hjartardóttir, Guðjón Hjörleifsson, Kjartan Ólafsson og Gunnar Örlygsson hafa öll gefið kost á sér í efstu sæti listans, en Árni Mathiesen fjármálaráðherra stefnir einn á fyrsta sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×