Innlent

Herdís stefnir á annað sæti í Norðvesturkjödæmi

Herdís Sæmundardóttir er til vinstri á þessari mynd.
Herdís Sæmundardóttir er til vinstri á þessari mynd.

Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herdísi. Herdís var í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í kjördæminu fyrir síðustu þingkosningar og er hún því fyrsti varaþingmaður flokksins. Þeir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristinn H. Gunnarsson sitja nú á þingi fyrir Framsóknarflokkinn í kjördæminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×