Innlent

Reyndu að berja þá með spýtum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til eftir að tveir menn um tvítugt flúðu úr samkvæmi á Kjalarnesi í nótt eftir að hópur ungmenna reyndi að berja þá með spýtum.

Fórnarlömbin náðu þó að komast upp á Vesturlandsveg þar sem þeir náðu að húkka sér far í bæinn.

Þó mikið hafi verið að gerast hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt var nóttin róleg hjá lögreglunni annars staðar á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×