Innlent

Reykvíkingar hvattir til að hjóla og hvíla bílinn

Í dag eru Reykvíkinginar hvattir til þess að hjóla saman og hvíla bílinn. Dagurinn er liður í Samgönguvikunni en Reykjavíkurborg tekur nú fjórða árið í röð þátt í Evrópsku Samgönguvikunni.

Hjólalestir lögðu af stað frá úthverfum borgarinnar klukkan eitt í dag og koma þær saman í Hljómskálagarðinum klukkan korter yfir þrjú. Þar verður götuhjólreiðakeppni, þrautabraut auk þess sem ofurhugar sýna listir sínar á BMX og fjallahjólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×