Innlent

Actavis hækkar ekki tilboð sitt í PLIVA

Actavis hyggst ekki hækka tilbði sitt í króatíska lyfjafyrirtækið PLIVA eftir að bandaríska fyrirtækið Barr Pharmaceuticals hækkaði tilboð sitt í síðustu viku.

Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að stjórn félagsins telji að núverandi tilboð þess til hluthafa PLIVA að upphæð 2,5 milljarða bandaríkjadala, eða um 175 milljarða króna, endurspegli vel virði félagsins. Mun Actavis hafa samband við fjármálaeftirlit Króatíu í því skyni að losa þá ábyrgð sem félagið hefur lagt fram vegna tilboðs síns í hlutafé PLIVA. Actavis á um fimmtung í PLIVA með beinum eða óbeinum hætti og mun félagið fylgjast með framvindu söluferlisins og áskilur sér rétt til að ganga aftur inn í það ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×