Innlent

Forsetahjónin á ráðstefnu í New York

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur boðið Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Dorrit Moussaeff forsetafrú að taka þátt í ráðstefnunni Clinton Global Initiative í New York í vikunni. Ráðstefnuna sækja fjölmargir þjóðarleiðtogar og forystumenn í alþjóðamálum. Rætt verður um loftslagsbreytingar, baráttuna við fátækt, heilbrigðismál og heimsfaraldra og vaxandi trúarátök. Forseti Íslands mun eiga fundi í New York og Washington með ýmsu áhrifafólki á alþjóðavettvangi auk þess að sækja ráðstefnuna sem hefst á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×