Innlent

Össur nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Össur Skarphéðinsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fundi þingflokksins á Hótel Glym í Hvalfirði fyrr í dag. Á fundinum voru Kristján L. Möller endurkjörinn varaformaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir endurkjörin ritari þingflokksins. Össur tekur við þingflokksformennsku af Margréti Frímannsdóttur sem lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki gefa kost á sér aftur til þingsetu í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×