Innlent

Framkvæmdir víða við þjóðveginn

Umferð verður beint um Hvalfjörðinn að næturlagi í þessari viku vegna viðhalds í Hvalfjarðargöngunum.
Umferð verður beint um Hvalfjörðinn að næturlagi í þessari viku vegna viðhalds í Hvalfjarðargöngunum. Mynd/Hari

Hvalfjarðargöngin verða lokuð yfir nóttina þessa viku fram á föstudag. Göngin verða lokuð fyrir umferð frá miðnætti til klukkan sex að morgni. Fleiri framkvæmdir eru víðar á þjóðvegum landsins en búast má við umferðartöfum við brúnna yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Þá standa yfir brúarframkvæmdir á Djúpavegi við Selá í Hrútafirði. Umferð er beint um hjá leið en umferð verður að öllum líkindum hleypt um brúna 10. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×