Innlent

Velti bíl og tengivagni í Ártúnsbrekku

Ökumaður dráttarbíls með tengivagni slapp lítið sem ekkert meiddur þegar bíllinn og vagninn ultu neðarlega í Ártúnsbrekku í Reykjavík á tólfta tímanum í morgun. Svo vel vildi til að engin annar bíll var nálægur rétt þegar slysið varð. Tengivagninn var hlaðinn rúðugleri sem mölbrotnaði og dreifðist víða. Vegna hreinsunarstarfs þurfti að loka Miklubrautinni til austurs frá Grensásvegi og verður hún lokuð fram undir klukkan eitt. Tildrög slyssins eru óljós, en mikill þungi var í glerinu, sem var á tengivagninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×