Innlent

Lúðvík vill leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir því að skipa 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í næstu alþingiskosningum. Lúðvík hefur setið á þingi í ellefu ár og var annar maður Samfylkingarinnar í kjördæminu í síðustu kosningum. Áður hafði Jón Gunnarsson, félagi Lúðvíks á þingi, lýst yfir vilja til að leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×