Innlent

Arnbjörg býðst til að leiða sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi

MYND/GVA
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og formaður þingflokks sjálfstæðismanna, sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í komandi kosningum til Alþingis. Þetta gerir hún eftir að Halldór Blöndal, leiðtogi flokksins í kjördæminu, hefur ákveðið að sækjast ekki eftir áframhaldandi þingsetu. Arnbjörg hefur setið á þingi frá árinu 1995, fyrst sem þingmaður fyrir Austurlandskjördæmi og svo fyrir Norðausturkjördæmi frá árinu 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×