Innlent

Katrín gefur kost á sér í annað sætið

MYND/E.Ól
Katrín Júlíusdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sætinu í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga. Nokkrar breytingar hafa orðið á liði Samfylkingarinnar í kjördæminu því Guðmundur Árni Stefánsson og Rannveig Guðmundsdóttir gefa ekki kost á sér til setu á Alþingi að nýju. Katrín hefur setið á þingi síðastliðið kjörtímabil en þegar hafa þrír lýst yfir framboði í fyrsta sæti listans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×