Innlent

Viktor fer ekki í prófkjörsslag

Viktor B. Kjartansson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, hyggst ekki gefa kost á sér í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum.

Búist hafði verið að hann yrði með og myndi jafnvel keppa við Árna Mathiesen fjármálaráðherra um forystusætið í kjördæminu en Viktor sagði í samtali við fréttastofu að eftir mikla yfirlegu hefði hann metið það svo að erfitt yrði að sigra fjármálaráðherra vegna sterkrar stöðu hans í flokknum og hann hafi sjálfur ekki talið spennandi að vera neðar á listanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×