Innlent

Stofnað til hvatningarverðlauna leikskóla í Reykjavík

MYND/GVA

Ákveðið var á fyrsta fundi nýs leikskólaráðs 22. september að stofna til hvatningarverðlauna leikskóla í Reykjavík, sambærileg þeim sem veitt eru árlega til grunnskóla í borginni. Hvatningarverðlaunin verða veitt sex skólum ár hvert eftir því sem segir í tilkynningu frá menntasviði. Markmið verðlaunanna er að veita leikskólum í Reykjavík jákvæða hvatningu í starfiog stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi. Auglýst verður eftir tilnefningum til verðlaunanna í byrjun nóvember og geta foreldrar, kennarar, skólar, starfsmenn og aðrar borgarstofnanir sent inn tilnefningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×