Innlent

Sextán manns vakta varnarsvæðið þegar herinn fer

MYND/Teitur
Búið er að ráða tólf öryggisverði til að starfa með fjórum lögreglumönnum við að vakta varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli eftir að síðustu varnarliðsmennirnir yfirgefa svæðið um helgina. Gæslan verður undir stjórn lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli, sem innan tíðar verður lögreglustjóri á öllu Reykjanesi. Auk þessa mannafla verður stuðst við margar eftirlitsvélar og er þetta gert til að koma í veg fyrir þjófnað og skemmdarverk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×