Innlent

Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi

MYND/Róbert

Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu.

Atli hefur meðal annars barist fyrir kvenfrelsi, náttúruvernd og réttindum launafólks og útlendinga bæði innan og utan þings síðustu ár ásamt því að reka lögfræðistofu í rúman aldafjórðung og meðal annars starfað fyrir Eflingu - stéttarfélag og fleiri stéttarfélög og félagsmenn þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×