Innlent

SBV gagnrýnir niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra

MYND/Vilhelm
Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) harma niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra sem skilaði af sér tillögum um aðkomu ríkisins að húsnæðislánamarkaði. Hópurinn leggur til að komið verði á fót heildsölubanaka sem sinni fjármögnun íbúðarlaána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði.

Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að SBV telji að tillögur hópsins hindri eðlilega samkeppni á íbúðalánamarkaði og beinist að frekari ríkisvæðingu á húsnæðislánamarkaði.

„Það er þvert á nútímaleg viðhorf um hlutverk ríkisins í atvinnulífi, að það skuli halda sig fjarri mörkuðum þar sem samkeppni ríkir, sbr. þær alvarlegu ábendingar sem alþjóðlegar stofnanir og matsfyrirtæki hafa sett fram undanfarin misseri um óeðlileg ríkisafskipti á íslenskum húsnæðislánamarkaði. Stýrihópur lagði þannig upp með að nýr sjóður yrði ekki eiginlegur heildsölusjóður heldur ríkisbanki á fjármálamarkaði sem veitti lán í gegnum dreifinet banka og sparisjóða," segir í tilkynningunni.

Enn fremur segir í tilkynningunni

„SBV kynntu stýrihópi félagsmálaráðherra tillögur um fjármögnunarsjóð íbúðalána í sumar. Þær fela í sér:

· Að settur verði á stofn heildsölu fjármögnunarsjóður sem keypti lán af lánveitendum á grunni staðla sem sjóðurinn setur.

· Með því væri verðsamkeppni á húsnæðislánamarkaði tryggð og einstakir lánveitendur gætu keppt sín á milli um lánstíma, vaxtakjör og aðra þætti, s.s. verðtryggð eða óverðtryggð lán o.s.frv.

· Að sjóðurinn væri grundvöllur almenns lánakerfis húsnæðislána á Íslandi í takt við það sem þekkist í öðrum ríkjum.

· Að skilið verði á milli almenns lánakerfis og félagslegs kerfis. Almennt lánakerfi tryggði þannig lán til allra sem standast greiðslumat óháð búsetu. Félagslegt kerfi sneri að þeim sem ekki stæðust greiðslumat.

· Að um einn stóran sameiginlegan sjóð í eigu ríkis og markaðsaðila væri að ræða, sem gæfi út stóra skuldabréfaflokka með miklum seljanleika og dýpt. Með slíkri sameiginlegri aðkomu yrðu útgáfur sjóðsins nægilega stórar til að verða eftirsótt fjárfesting fyrir fjárfesta á alþjóðamarkaði.

· Að sett verði almenn löggjöf um varin skuldabréf"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×