Innlent

Kristján sækist eftir sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar í Kraganum

Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Álftaness, gefur kost á sér í eitt af efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Fram kemur í tilkynningu frá honum að hann hafi lengi starfað að sveitarstjórnarmálum á Álftanesi en áður í Kópavogi.

„Þörf á að setja saman öflugan og sigurstranglegan lista Samfylkingarinnar til að ná þeim ásættanlegu markmiðum að flokkurinn setjist í ríkisstjórn að kosningum loknum. Brýnt fyrir samfélag okkar og brýnt fyrir landsmenn alla," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×