Innlent

Tvær bækur hlutu Íslensku barnabókaverðlaunin

Bækurnar Sagan af undirfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum eftir Margréti Tryggvadóttur og Halldór Baldursson og Háski og hundakjöt eftir Héðinn Svarfdal Björnsson fengu í morgun Íslensku barnabókaverðlaunin 2006. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Ingunnarskóla. Var dómnefnd sammála um að handritin bæru af öðrum sem send voru inn í keppnina. Það er Vaka-Helgafell sem gefur báðar bækurnar út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×