Innlent

Forseti litháíska þingsins í opinberri heimsókn

MYND/Stefán

Viktoras Muntianas, forseti litháíska þingsins, er í opinberri heimsókn hér á landi sem hófst í gær og stendur fram á laugardag. Forsetinn mun ásamt sendinefnd funda með Sólveigu Pétursdóttur, forseta Alþingis, og fulltrúum þingflokka.

Nefndin mun einnig hitta að máli forseta Íslands, forsætisráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis. Þá mun hún ræða við fulltrúar ýmissa íslenskra fyrirtækja sem eru með starfsemi í Litháen ásamt því að heimsækja helstu ferðamannastað í nágrenni við höfuðborgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×