Innlent

Fylling Hálslóns hefur gengið vel

Jökla var stífluð við Kárahnjúka á tíunda tímanum í morgun og gekk framkvæmdin vel að sögn talsmanns virkjunarinnar. Hálslón er byrjað að myndast og hefur það hækkað um tíu metra við stífluna frá því að tappinn var settur í. Fyrir neðan stíflu er Jökla að hverfa.

Til þess að hefja fyllingu Hálsóns þurfti að loka tveimur lokum og tók það um tíu mínútur að loka hvorum. Að sögn Sigurðar Arnalds, talsmanns Kárahnjúkavirkjunar, gekk lokunin í alla staði vel. Eftir að lokunum hafði verið lokað var steypu dælt ofan við þær til þess að þétta þær enn frekar og koma í veg fyrir leka. Jarðvegi verður svo mokað þar ofan á á næstunni til að tryggja lokurnar enn frekar.

Hratt hefur hækkað í Hálsóni við stífluna eins og búist hafði verið við og sagði Sigurður Arnalds að vatnborðið hefði þegar hækkað um tíu metra á þeim rúmu tveim tímum sem liðnir væru frá því að tappinn var settur í lónið.
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS
/NFS



Fleiri fréttir

Sjá meira


×