Innlent

Krefjast stofnanasamnings án tafar

MYND/NFS

Almennur félagsfundur sjúkraliða í Reykjavík og nágrenni krefst þess að gengið verði frá stofnanasamningi við sjúkraliða án frekari tafa. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi í gær.

Þar segir enn fremur að að fundurinn geri þá kröfu að við gerð stofnanasamninga verði tekið tillit til þeirra breytinga sem nýlega hafa verið gerðir á kjarasamningum annarra stétta innan félags- og heilbrigðisgreina. Er vakin athygli á því að nýútskrifaðir sjúkraliðar geti fengið sig metna sem félagsliða til að starfa utan heilbrigðisþjónustunnar þrátt fyrir þá alvarlegu staðreynd að verulegur skortur er á sérmenntuðum starfsmönnum til hjúkrunarstarfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×