Viðskipti erlent

Forstjóri Airbus segir upp

Christian Streiff, fráfarandi forstjóri Airbus.
Christian Streiff, fráfarandi forstjóri Airbus. Mynd/AFP

Christian Streiff, forstjóri flugvélaframleiðandans Airbus, er sagður ætla að segja starfi sínu lausu síðar í dag. Louis Gallois, aðstoðarforstjóri EADS, móðurfélags Airbus mun taka við sæti hans.

Þetta þykja ekki góðar fréttir fyrir Airbus en Streiff hefur aðeins setið í um 100 daga í forstjórastóli.

Áður en Gallois kom til starfa hjá EADS var hann forstjóri evrópska flugvélaframleiðandans Aerospatiale, en það var eitt af fyrirtækjunum sem rann saman við EADS við stofnun samstæðunnar árið 2000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×