Innlent

Saxbygg kjölfestufjárfestir í Steni

Fjárfestingarfélagið Saxbygg er kjölfestufjárfestir í kaupum nokkurra fjárfesta á norska fyrirtækinu Steni sem framleiðir húsaklæðingar. Stofnað hefur verið eignarhaldsfélag, Steni Holding AS, sem er í eigu stjórnenda, starfsmanna og hóps íslenskra, norksra og finnskra fjárfesta. Björn Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri Saxbyggs, sest í stjórn Stenis. Félagið a dótturfélög víða í Skandinavíu og rekur fjölda söluskrifstofa í Noregi og víðar. Starfsmenn Steni eru 80 og áætluð velta er um 1600 milljónir króna. Glitnir aðstoðaði við kaupendur í viðskiptunum og annaðist fjármögnun yfirtökunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×