Innlent

Jóhanna sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar

MYND/GVA

Jóhanna Sigurðardóttir þingkona hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2.-3.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer 11. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Jóhanna hefur setið á Alþingi síðan 1978 og var félagsmálaráðherra á árunum 1987-1994.Hún hefur á yfirstandandi kjörtímabili verið í forystu fyrir Samfylkinguna í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar sem hún varð í 2. sæti í prófkjörinu 2003. Jóhanna á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd og félagsmálanefnd og er fjórði varaforseti Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×