Innlent

Stefán nýr aðalendurskoðandi Seðlabankans

MYND/Róbert

Stefán Svavarsson var nýverið ráðinn í starf aðalendurskoðanda Seðlabanka Íslands og hefur hann störf 1. nóvember næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu frá bankanaum að Stefán hafi undanfarið gegnt dósentsstöðu við Háskólann í Reykjavík en hann var áður dósent við Háskóla Íslands. Stefán þekkir vel til starfsemi Seðlabankans því hann var um langt árabil ráðherraskipaður ytri endurskoðandi bankans á grundvelli fyrri laga um bankann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×