Innlent

Átta manns berjast um fimm sæti hjá Framsókn í NV-kjördæmi

MYND/Pjetur

Átta manns gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður með póstkosningu dagana 3.-17. nóvember. Tveir berjast um efsta sætið, þeir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.

Herdís Á. Sæmundardóttir, varaþingmaður flokksins, sækist ein eftir öðru sætinu en G. Valdimar Valdemarsson og Valdimar Sigurjónsson sækjast eingöngu eftir þriðja sætinu. Þá sækist Inga Ósk Jónsdóttir eftir 3.-4. sæti og þau Albertína Elíasdóttir og Heiðar Þór Gunnarsson eftir þriðja til fimmta sæti. Kosið verður um fimm efstu sætin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×