Körfubolti

Stórleikur í Njarðvík í kvöld

Steven Thomas hjá Grindavík hefur verið besti leikmaður Íslandsmótsins til þessa
Steven Thomas hjá Grindavík hefur verið besti leikmaður Íslandsmótsins til þessa

Fjórir leikir eru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15 að venju. Stórleikur kvöldsins er viðureign grannliðanna Njarðvíkur og Grindavíkur í Njarðvík, en hvorugt liðanna hefur tapað leik til þessa í deildarkeppninni.

Haukar taka á móti KR á Ásvöllum, Þór Þorlákshöfn mætir Keflavík og þá eigast við ÍR og Snæfell í Seljaskóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×