Tónlist

Múm hitar upp fyrir Sykurmolana

Múm hitar upp í Laugardalshöllinni fyrir Sykurmolana.
Múm hitar upp í Laugardalshöllinni fyrir Sykurmolana.

Eins og landi og lýð ætti að vera ljóst munu Sykurmolanir fagna 20 ára AMMÆLI sínu með því að koma saman að nýju og leika á einum einstökum afmælistónleikum í Laugardalshöll, föstudaginn 17. nóvember. Endurkoma Sykurmolanna og fyrstu tónleikar sveitarinnar í 14 ár hefur vakið verðskuldaða athygli innanlands sem utan. En það munu fleiri sveitir stíga á stokk á afmælistónleikunum í Höllinni.

Smekkleysu er sönn ánægja að tilkynna að auk Sykurmolanna mun hljómsveitin múm koma fram á afmælistónleikum Sykurmolanna og Smekkleysu í Laugardalshöll þann 17. nóvember. Þetta verða fystu tónleika múm á árinu en sveitin hélt síðast tónleika í desember í fyrra í Tapei höfuðborg Taiwan. Múm spiluðu sem plötusnúðar Summersonic Festival í Tókíó og Osaka í sumar og á Isle of Wight hátíðinni í Bretlandi núna í september, auk þess að snúa plötum á Sirkus á opnunarkvöldi Airwaves hátíðarinnar í október. Múm lék síðast á tónleikum hérlendis á Snæfellsnesi í ágúst 2005 og þar á undan í Bæjarbíó Hafnarfirði í ágúst 2004. Hér eru því á ferðinni góðar fréttir fyrir innlenda og erlenda tónlistaráhugamenn sem ætla sér að mæta á endurkomu Molanna.

Ný múm plata er væntanleg og hafa liðsmenn sveitarinnar m.a. verið við upptökur á henni í Finnlandi. Segja þeir sem heyrt hafa að þar kenni við nýjan hljóm í ferli sveitarinnar, platan sé að mörgu leiti ólík fyrri verkum múm, rokkaðri og kraftmeiri. Hún er væntanleg í byrjun næsta árs. Strax í desember mun Fat Cat hins vegar gefa út upptökur úr þætti John Peel á BBC frá árinu 2002 undir nafninu múm Pell Session.

FL Group er bakhjarl endurkomu Sykurmolanna og afmælistónleika sveiterinnar og Smekkleysu í Laugardalshöll.

MIÐASALA

Enn eru til miðar á afmælistónleika Sykurmolanna og Smekkleysu. Miðasala er í fullu gangi í verslunum Skífunnar Kringlunni og Smáralind, BT Akureyri, Selfossi og Egilstöðum og á Midi.is. Miðaverð er 5.000 krónur, að viðbættu 350 kr miðagjaldi söluaðila.

ATH Aldurstakmark á tónleikana er 18 ár, nema í fylgd fullorðinna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×