Þolinmæði aðstandenda aldraðra á þrotum 8. nóvember 2006 09:45
Þolinmæði aðstandenda og baráttufólks um bættan hag aldraðra er á þrotum og því verður efnt til baráttufundar í Háskólabíói þann 25. nóvember þar sem þess verður krafist að Alþingi og ríkisstjórn leggi stóraukið fjármagn í málaflokkinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðstandendafélagi aldraðra og Félagi aðstandenda alzheimerssjúklinga. Tilefni fundarins er yfirlýsing heilbrigðisráðherra um uppbyggingu hjúkrunarheimila á næstu fjórum árum en til hennar eru ætlaðir 1,3 milljarðar sem ætlunin er að leggja fram á árunum 2008 og 2009. Við þetta eru aðstandendur aldraðra ekki sáttir og vilja aðgerðir strax. Benda þeir meðal annars á að nú séu 1000 einstaklingar í bráðri þörf á biðlistum eftir hjúkrunarrými þrátt fyrir yfirlýsingar heilbrigðisráðherra um að biðlistar séu að styttast og að nærri 300 manns búi enn í fjölbýli á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Þá sé mjög alvarlegur skortur á úrræðum fyrir alzheimerssjúklinga, bæði í bráð og lengd. Enn fremur er bent á að hátt í þrír milljarðar af fé sem lagt hefur verið í Framkvæmdasjóð aldraðra á undanförnum árum hefur farið í önnur verkefni en byggingu hjúkrunarheimila. Því fé ætti ríkisvaldið að skila strax.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Segist vita hver vó Geirfinn Innlent Vita ekki hvað fór úrskeiðis Innlent Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Innlent Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Innlent Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Erlent Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Innlent Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Innlent Skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti Innlent „Það var reitt hátt til höggs“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir „Það var reitt hátt til höggs“ Skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Segist vita hver vó Geirfinn Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Vita ekki hvað fór úrskeiðis Lykildagar fram undan: „Það er mjög erfitt ástand á heimilinu“ Hinsegin fólk í Bandaríkjunum horfir til Íslands „Klassískt dæmi“ um sérhagsmunagæslu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks Sérhagsmunagæsla, lykildagar og bókaormar í beinni Málglaðasti þingmaðurinn talaði í þrjá og hálfan sólarhring Bein útsending: Kosningafundur Flugmálafélags Íslands Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Ólíklegt að gjósi í nóvember Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið Sautján mál urðu að lögum og tvær þingsályktanir samþykktar Auka öryggið á Bland.is vegna svikahrappa Minnisblað þvert á niðurstöðu dómsins Ekið á sex kindur viku eftir að ekið var á sjö Kosningafundur um jafnréttismál Lögfræðingar Alþingis vöruðu við breytingum á búvörulögum Lögfræðingar þingsins lögðu til að nýtt frumvarp yrði lagt fram Mál hjúkrunarfræðingsins tekið fyrir á ný í dag Fjölmennt á samstöðufundi foreldra leikskólabarna á Sauðárkróki Sexfalda greiðslur í fyrstu tæknifrjóvgun og tæknisæðing telur Unglingar í alvarlegum vanda fá nýtt húsnæði Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína í aðdraganda kosninga Borgarlínuvagnar þeir einu sem fái að aka Fríkirkju- og Skothúsveg Sjá meira