Innlent

Um 500 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík

MYND/GVA

Tæplega 500 manns hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer á laugardaginn kemur. Þetta kemur fram á heimasíðu flokksins. Fimmtán sækjast eftir sæti á lista flokksins, þar á meðal allir átta núverandi þingmenn flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Prófkjörið er opið flokksmönnum og stuðningsmönnum Samfylkingarinnar og verður kosið í félagsheimili Þróttar í Laugardal á milli 10 og 18 á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×