Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóraskipti hjá Icelandic Group

Icelandic Group og Dr. Norbert Engberg framkvæmdastjóri dótturfélaganna Pickenpack H&H og Pickenpack Gelmer SAS, hafa gert með sér samkomulag um að Dr. Engberg láti af störfum. Við starfi hans taka Finnbogi Baldvinsson framkvæmdastjóri Icelandic Europe og Wolfgang Kohls framkvæmdastjóri Pickenpack H&H.

Engberg tók við starfi framkvæmdastjóra í maí á þessu ári, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandic Group.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×