Innlent

Slysahættan mest á heimleið eftir Miklubrautinni

Miklabrautin er hættuleg ökumönnum, sérstaklega í kringum fimmleitið.
Miklabrautin er hættuleg ökumönnum, sérstaklega í kringum fimmleitið.

Höfuðborgarbúar eru í mestri hættu á að lenda í umferðarslysi á leiðinni heim úr vinnu síðdegis, að því er kemur fram í samantekt Forvarnahúss Sjóvár fyrir árið 2005. Hins vegar slasast flestir í hádegisumferðinni.

Í skýrslu Forvarnahússins segir að á árinu 2005 hafi 11.100 umferðaróhöpp verið tilkynnt til tryggingafélaganna, þar af 7.200 sem hafi verið talin bótaskyld. Í þessum óhöppum slösuðust 900 einstaklingar og rúmlega 22.000 bílar skemmdust. Ef sá fjöldi bíla yrði settur í eina bílalest næði hún frá Reykjavík austur á Hellu, eða tæplega 100 kílómetra.

Rúmlega helmingur tjónanna, 56 prósent, varð í höfuðborginni. Flest tjónin urðu á helstu umferðaræðum borgarinnar, þar af 417 á Miklubrautinni með þeim afleiðingum a 96 manns urðu fyrir líkamstjóni.

Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar voru tjónamestu gatnamótin. Á þeim slösuðust 12 einstaklingar í 64 umferðarslysum. Á síðustu sex árum hafa orðið rúmlega 520 tjón á þesum gatnamótum og rúmlega 200 einstaklingar slasast.Sjóvá segir að kostnaður samfélagsins vegna gatnamótanna á þessu tímabili sé líklega vel yfir milljarður króna, að ótöldu því líkamstjóni sem viðkomandi einstaklingar verða fyrir.

Forvarnahúsið segir ljóst að yngstu ökumennirnir séu líklegastir til að valda slysi. Slysahlutfallið minnkar með aldrinum en eykst aftur meðal elstu ökumanna. Þá valda ungir ökumenn hlutfallslega langflestum slysum á fólki, sem Sjóvá segir að bendi til þess að þeir aki hraðar og valdi því frekar alvarlegri slysum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×