Menning

Fyrir kvölddyrum

Hjá Máli og menningu kemur út á morgun ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson, Fyrir kvölddyrum.

Hannes Pétursson er löngu viðurkenndur sem eitt helsta skáld 20. aldar. Allt frá því hann sendi frá sér Kvæðabók árið 1955, aðeins 23 ára að aldri, hefur þjóðin tekið skáldskap hans fagnandi. Fá skáld yrkja af jafn miklum hagleik og öryggi, bæði undir hefðbundnum háttum sem og í frjálsara formi, og bragleikni Hannesar helst í hendur við einstaka myndvísi.

Hannes yrkir um mannlegar tilfinningar í öllum sínum fjölbreytileika, en ekki síst eru það yrkisefni tengd náttúru og sögu Íslands sem hafa gert hann ástsælan með þjóðinni.

Síðasta ljóðabók hans Eldhylur (1993) færði honum Íslensku bókmenntaverðlaunin. Hannes Pétursson er eitt helsta ljóðskáld síðustu aldar á Íslandi og sannkallað þjóðskáld. Ný ljóðabók frá hans hendi er tvímælalaust bókmenntaviðburður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.