Viðskipti innlent

Hagnaður FL Group 11 milljarðar króna

FL Group skilaði rétt tæpum 11 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tæpa 6,6 milljarða krónur í fyrra. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 5,25 milljörðum krónum miðað við rúma 4,6 milljarða krónur í fyrra.

Í uppgjöri FL Group kemur fram að hagnaður fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins hafi numið 11,3 milljörðum króna sem er 40 prósenta aukning á milli ára. Hagnaðurinn á fyrstu 10 mánuðum ársins nemur hins vegar 36,1 milljarði króna.

Bókfært eigið fé FL Group við lok þriðja ársfjórðungs nam 112,2 milljörðum króna samanborið við 74 milljarða í árslok. Eiginfjárhlutfall félagsins við lok tímabilsins er 48,9 prósent, að teknu tilliti til fjármögnunar á fyrirframgreiðslum vegna kaupa á Boeing 737 800 flugvélum, að því er segir í uppgjörinu.

Handbært fé í lok þriðja ársfjórðungs nam 16,2 milljörðum króna miðað við 10,3 milljarða krónur í lok síðasta árs.

Afkoma Icelandair Group fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) fyrstu níu mánuði ársins nam 5,7 milljörðum króna. Á þriðja ársfjórðungi nam EBITDA 4,4 milljörðum króna og er það í samræmi við væntingar. Öll hlutabréf FL Group í Icelandair Group seld á þriðja ársfjórðungi.

Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, að hagstæður rekstur félagsins á þriðja fjórðungi ársins sé fagnaðarefni. „Þetta var viðburðaríkur tími í sögu félagsins og enn og aftur tókst vel til við rekstur, fjárfestingar og fjárstýringu. Útgáfa nýrra hluta í FL Group í tengslum við kaup á hlutum í Straumi-Burðarási hefur styrkt eiginfjárstöðu félagsins verulega. Rekstur Sterling er á réttri leið og við teljum horfur í rekstri þess jákvæðar. Það er þess vegna ljóst að framundan eru spennandi tímar fyrir FL Group enda hefur félagið skapað sér trausta umgjörð til að takast á við ný verkefni," segir Hannes.

Tilkynning FL Group






Fleiri fréttir

Sjá meira


×