Innlent

Verið að endurskoða reglur um flutning fanga

Ívar Smári Guðmundsson.
Ívar Smári Guðmundsson. MYND/Lögreglan í Reykjavík
Lögreglan leitar enn Ívars Smára Guðmundssonar fanga af Litla Hrauni sem strauk í gær frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Fangelsismálastjóri segir að ekki hafi verið talin ástæða til að hafa fangann í handjárnum. Reglur um flutning fanga eru nú í endurskoðun.

Ívar Smári er 26 ára og er að afplána 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála. Hann strauk klukkan þrjú í gær frá fangaflutningsmönnum þegar þeir voru að fara með hann í Héraðsdóm Reykjavíkur. Ívar Smári er 180 sentímetrar á hæð og var klæddur í svartan stuttermabol og græna hettupeysu þegar hann strauk.

Valtýr Sigurðsson, fangelsismálastjóri, fundaði í dag með þeim sem að þessum málum koma. Hann sagði í samtali við NFS eftir fundinn að reglur um flutninga fanga væru í endurskoðun og í því sambandi yrði litið til þess hvernig málum væri háttað í Noregi og Danmörku. Reglurnar sem nú væri unnið eftir væru frá árinu 1999. Hann segir að mat sé lagt á það í hvert skipti hvort ástæða sé til að fangar séu handjárnaðir. Almennt sé reynt að komast hjá því, enda sé oft verið að flytja fanga til læknis og á aðra slíka staði, en það sé metið í hverju tilviki fyrir sig eins og fyrr segir.

Valtýr segir Ívar Smára hafa verið fluttan úr fangelsinu áður án þess að nokkuð hafi komið upp á og ekki hafi verið talið ástæða til að hafa hann handjárnaðan nú, þótt auðvelt sé að vera vitur eftir á. Lögregla telur ástæðu til að ætla að Ívar Smári geti verið varasamur og tekur fangelsismálastjóri undir það, en segir ekki lýst eftir honum sem hættulegum manni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×