Erlent

„Við skjótum þig í fótinn.“

Hvorn fótinn ?

Yfirvöld í Indónesíu hafa ráðlagt fólki að halda sig innan dyra þegar George Bush, forseti Bandaríkjanna, kemur þangað í heimsókn í næstu viku.

Meðan á heimsókninni stendur mun forsetinn halda til í svefnbænum Bogor sem er um fimmtíu kílómetra sunnan við höfuðborgina Jakarta. Herinn hefur heitið því að vernda forsetann, með öllum ráðum sem til þurfi.

Borgarfulltrúi í Bogor segir að það sé best að halda sig innan dyra meðan Bush haldi til þar. „Það er hættulegt að vera úti.“ sagði borgarfulltrúinn. „Grunsamlegar mannaferðir geta leitt til þess að menn verði skotnir í fótinn...og margt venjulegt fólk veit það ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×